Upp og niður...
Jæja...helgin komin og farin, jafntefli og sigur. Það var nú kannski ekkert annað en bjartsýni að halda að mínir myndu vinna Rússkí Mafískí. Jafntefli verður að teljast sanngjarnt miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Svo þessi líka vafasami, en ágæti sigur á Everton. Miðað við hvað þeir voru slappir og teflandi fram uppáhaldsleikmönnunum mínum (O'Shit & Darren Hermanns) þá var það lán í óláni hvað Everton voru lélegir! Hefði Chelskí nú bara gert jafntefli, þá hefði dagurinn verið fullkominn! (í ljósi þess hvernig fór hjá Pool & Nal)
Einn Nallarinn í vinnuni var að spjalla við mig um daginn og veginn og oftar en ekki barst talið að Chelsea og öllu klinkinu þeirra. Að sjálfsögðu játa ég það, að ekki skortir það að smá öfund sé til staðar, enda geta þeir keypt hvern sem er.
En þá spurði ég hann líka, myndi ekki hvaða klúbbur sem er gera slíkt hið sama?
Ég get lofað ykkur að að svarið væri alltaf já! Sama hvað hver reynir að sannfæra mig um, ef einhver væri í þeirri aðstöðu að geta fengið hvaða leikmann sem er og ekki þurft að pæla í verði eða launum, þá myndi hinn sami gera það!
Hættu svo þessu væli Blatter! Þetta er bissness ekki góðgerðarstarfsemi.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home