Saturday, December 16, 2006

Seiglan...

Ég er fyrstur manna til að viðurkenna að ég er mikill aðdáandi Jose Mourinho. Sérstaklega vegna þess að hann hefur alveg einstakt lag á að gera Arsene Wenger alveg hoppandi dýrvitlausan með heila-hræringum.

Svo skemmir nú ekki fyrir að hann er fjandi góður knattspyrnustjóri, og liðið hans spilar ekki fallega knattspyrnu, heldur árángursríka! Og viti menn, titla vinna þeir.

Þó svo að mínir menn séu með forystu enn sem komið er, þá eru Chelsea eins og slæmur kynsjúkdómur, það er alveg sama hvað þú reynir, þeir fara ekki í burtu.

Annars bara vel sáttur við að hálfpartinn hafa fengið fraseðil beint í 8 liða í CL. OSC Lille eru nú ekki beint sterkustu andstæðingarnir !!! (Ok, lets face it, þeir eru klaufar ef að þeir ekki komast áfram!)

Mr. Red Inc.

Saturday, December 09, 2006

Uss....

Prik dagsins fær Stuart Pearce! Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi "Psycho" eins og hann er svo elskulega kallaður oft :)

Man City boss Stuart Pearce on Bernardo Corradi's sending off:
"I have no complaints about the sending off.

"Bernardo went down a little bit too easily and I am not like the other 19 managers, who would sit here and give you a load of cock and bull about it.

"I would prefer him to stay on his feet and I intend to speak to him about it this week. Hopefully then, he will stay on his feet."



Alveg sama hvernig að maður lítur á það, þá er kallinn haldinn ótrúlega góðum gildum og einlægni sem að á sér ekki líkan. (Sérstaklega ekki þegar að Wenger kallinn segir svo oft sem ekki: "I did not see that incident") Þvílík reisn í tapinu!

Annað sem að kannski kom ekki á óvart:

http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/teams/h/heart_of_midlothian/6165375.stm

Ef einhver hefur verið að fylgjast með þróuninni í þessum klúbb norðan heiða, þá ættu menn að vita að þróunin er á vægasta máta sagt skelfileg! Mikil synd að svona skuli vera að fara fyrir þessum gamla og gróna klúbbi.

Svo verður nú gaman að sjá hvernig "Nöllunum" vegnar á móti "Rúblunum" á morgun ??

Saturday, December 02, 2006

And the Reds go marching on, on, on!

Hvað er hægt að segja? Það er aldeilis uppi á manni t****ð þegar að liðið manns vinnur daginn út og inn! En svo að maður sé raunsær, þá er betra að halda í vonina að ekki komi hrun á einum eða öðrum tímapunkti. Annars er það ekki annað en raunsæi að segja að þetta sé 2 hesta keppni ("Two-horse-race") þar sem að allir aðrir eru svo vel fyrir aftan að hálfa væri hellingur! Þó svo að nallarnir og púlararnir hafa slysast til að vinna í dag, þá er það ekki nóg. Enginn hroki góðir hálsar, bara staðreynd. Er annars hress að "Henke" gamli ætli að taka sig til og vera með smá "Cameo" eftir áramót. Þvílíkt snilldar-move hjá þeim gamla! (Bæði Larsson og Ferguson þ.e.a.s.)

Tala dagsins er 959! (Fjöldinn af mínútum sem að Liverpool spilaði á útivelli án þess að skora!)